Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 411/2009

Nr. 411/2009 8. apríl 2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 361/2005.

1. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 358/2008 frá 22. apríl 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal XXI, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 118/2008 frá 7. nóvember 2008 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 8. apríl 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2009