Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum samþykkti bæjarstjórn Grundarfjarðar þann 9. febrúar 2012 deiliskipulag Króks, frístundabyggð í Grundarfirði. Í deiliskipulaginu eru markaðar sex frístundalóðir frá 8.615 m² til 9.800 m² að stærð. Heimilt verður að byggja allt að 200 m² hús með risi og kjallara auk allt að 25 m² geymslu. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Grundarfirði, 21. mars 2012. Smári Björnsson skipulagsfulltrúi. |