Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 354/2015

Nr. 354/2015 1. apríl 2015
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, 38., 39., 40., 41. og 42. tölul., sem verða eftirfarandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 676/2014 frá 19. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið trí­klabendasól. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 251.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 677/2014 frá 19. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið kabergólín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 41/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 254.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 681/2014 frá 20. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið rafoxaníð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 257.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 682/2014 frá 20. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið klósantel. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 41/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 260.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 683/2014 frá 20. júní 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið klórsúlón. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 41/2015, frá 26. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 263.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 17. apríl 2015