Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 385/2012

Nr. 385/2012 13. apríl 2012

GJALDSKRÁ
fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunareftirlit á starfssvæði heilbrigðisnefndar Vestfjarða.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og reglugerðum settum með stoð í þeim, lögum nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni, lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum og lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum, er aðildarsveitarfélög­unum heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari. Sama gildir um starfsemi sem háð er eftirliti Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða skv. sérstökum samningum um framsal eftirlits með einstökum fyrirtækjaflokkum frá Umhverfisstofnun eða frá Matvælastofnun til heilbrigðisnefndar.

2. gr.

Tímagjald

kr.

9.160

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun

kr.

12.840

Gjald fyrir sýni sem tekin eru skv. samningum eða að ósk einstaklinga eða fyrirtækja er kr. 12.840 að lágmarki, en sé raunkostnaður við rannsókn skv. reikningi frá rannsókna­stofu hærri skal innheimta raunkostnað að viðbættu 35% umsýslugjaldi. Einnig skal innheimta akstursgjald skv. tímagjaldi ef ekki er unnt að samnýta ferðir vegna sýnatök­unnar.

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Áætluð tíðni eftirlits í fyrirtæki eða starfsstöð skal kynnt starfsleyfishafa í fylgibréfi með starfsleyfi. Þar skal ennfremur tekið fram hver flokkun fyrirtækisins er og hvort sýna­tökur eru innifaldar í eftirlitsgjaldinu. Eftirlitsaðila er heimilt að fjölga tímabundið eftirlits­ferðum ef nauðsyn krefur t.d. þegar nýr búnaður hefur verið tekinn í notkun eða vegna kvartana. Hækkar þá eftirlitsgjald sem því nemur.

Heimilt er að breyta eftirlitsáætlun hjá einstaka fyrirtæki verði eftirlit frábrugðið s.s. vegna takmarkaðrar starfsemi, vottaðs gæðakerfis eða öflugs innra eftirlits og lækka gjaldið til samræmis. Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur. Um starfsemi sem er eftirlitsskyld og ekki kemur fram á fylgiskjali, viðauka A, greiðist eftirlitsgjald eins og um þjónustuverkefni væri að ræða.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi og þjónustu eins og hér segir:

Ný starfsemi:

Starfsleyfisgjald

Eitt og hálft tímagjald

og eftirlitsgjald í samræmi við viðkomandi fyrirtækjaflokk

ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

Endurnýjun og/eða breyting á starfsleyfi:

Starfsleyfisgjald

Eitt tímagjald

og auglýsingakostnaður ef við á.

Önnur starfsleyfi og leyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun, t.d. tóbakssöluleyfi:

Starfsleyfisgjald

Eitt og hálft tímagjald

og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,

ferðar, úttektar og frágangs,

ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

Endurnýjun annarra leyfa, sbr. hér að ofan:

Starfsleyfisgjald

Eitt tímagjald


Fyrir leyfi útgefin vegna sölu á útimörkuðum

eða aðra skammtíma starfsemi:

Eitt tímagjald

og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks

eða gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,

ferðar, úttektar og frágangs,

ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis.

Heimilt er að semja um annað fyrirkomulag óski rekstraraðilar eftir og skal það þá gert skriflega.

5. gr.

Fyrir vottorð og umsagnir sem Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða gefur út samkvæmt fyrir- liggjandi gögnum og fyrir eiturbeiðnir skal greiða hálft tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Aðildarsveitarfélögin annast innheimtu eftirlitsgjalda vegna fyrirtækja með reglubundna starfsemi.

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir tímabundna starfsemi, leyfi, vottorð, eiturbeiðnir og þjónustuverkefni. Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka A sem fylgir gjaldskrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir, með síðari breytingum.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Gjalddagi samkvæmt 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

8. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund eftirlitsskyldrar starfsemi á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald. Gjaldið reiknast þannig að tími sem áætlaður er í hverja tegund fyrirtækjaflokks er lagður saman, en einungis eitt aksturs­gjald tekið, enda sé unnt að samnýta ferðir til eftirlits í allar tegundir umræddrar starf­semi.

9. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

10. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er af heilbrigðisnefnd Vestfjarða og samþykkt af sveitar­félögunum á Vestfjörðum með vísun til ákvæða 12. gr. laga nr. 7/1998 um holl­ustu­hætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, 21. gr. laga nr. 55/2003 um með­höndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, stað­festist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 204 frá 2010 fyrir heilbrigðis- og mengunareftirlit á Vestfjarðasvæði.

Bolungarvík, 13. apríl 2012.

F.h. heilbrigðisnefndar Vestfjarða,

Anton Helgason,
heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.


VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B-deild - Útgáfud.: 30. apríl 2012

  Til baka