Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 244/2014

Nr. 244/2014 7. mars 2014
REGLUR
um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr.

Öflun tekna til viðbótar fjárveitingu á fjárlögum.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla er Háskóla Íslands heimilt að afla sér tekna til viðbótar fjárveitingu á fjárlögum. Háskólaráð setur nánari reglur um gjaldtöku og ráðstöfun gjalda samkvæmt sömu lagagrein. Þessar reglur eru settar í sam­ræmi við það.

2. gr.

Skrásetningargjald.

 

Skrásetningargjald

kr. 75.000

 

Leyfi til skrásetningar utan auglýsts skrásetningartímabils

kr. 10.000

 

Skrásetningargjald - öryrki og nýskráning á vormisseri

kr. 55.000

 

Skráningargjald öryrki - nýskráning á vormisseri með álagi

kr. 65.000

 

Skrásetningargjald - gestanemandi á samningi

kr. 10.000

 

Skrásetningargjald - gestanemandi án samnings

kr. 20.000

 

Skrásetningargjald - í leyfi

kr. 10.000

 

Skrásetningargjald - úr leyfi

kr. 65.000

3. gr.

Staðfesting skráningar, gjalddagi og eindagi skrásetningargjalds.

Eindagi skrásetningargjalds er sem hér segir:

  1. 4. júlí vegna skrásetningar á auglýstum umsóknartímabilum (mars/apríl, nýskrán­ing í framhaldsnám, mars/júní, nýskráning í grunnnám, desember/janúar, erlendir umsækjendur).
  2. 4. júlí vegna skrásetningar í áframhaldandi nám (mars/apríl) fyrir komandi háskóla­ár.
  3. 6. janúar vegna skrásetningar á auglýstum umsóknartímabilum á vormisseri, ef um slíkt er að ræða (september/október, umsóknir í framhaldsnám, októ­ber/nóvem­ber, umsóknir í grunnnám).
  4. 20 dögum eftir að doktorsnemi er samþykktur í háskólann.

Beri eindaga upp á laugardag, sunnudag eða almennan frídag, færist eindagi til næsta virka dags þar á eftir.

Greiðsluheimild fellur úr gildi á eindaga, 4. júlí. Frá 5. júlí til og með 4. ágúst geta nemendur sem ekki hafa greitt skrásetningargjald fyrir eindaga sótt skriflega um leyfi til að ganga frá staðfestingu á skráningu utan auglýstra skráningartímabila. Um slíkt leyfi er sótt til nemendaskrár. Fái nemandi leyfi til skráningar greiðir hann skrásetningargjald með 10.000 kr. álagi eigi síðar en 4. ágúst og staðfestir þar með skrásetningu sína í háskól­ann. Frá og með 4. ágúst fellur sá möguleiki niður og þar með heimild til skóla­vistar. Nemandi sem fengið hefur heimild til að hefja nám á vormisseri verður að hafa staðfest skrásetningu sína fyrir eindaga, sem er 6. janúar.

4. gr.

Heimildir til lækkunar skrásetningargjalds.

Í lögum er fjárhæð skrásetningargjalds ákvörðuð fyrir heilt háskólaár, nú kr. 75.000, sbr. 2. gr. Lægra skrásetningargjald er heimilt að innheimta í eftirfarandi tilvikum:

 

a)

Ef stúdent á við verulega fötlun að stríða, sem haft getur áhrif á námsframvindu hans, kr. 55.000, sbr. 2. gr.

 

b)

Ef stúdent hefur fengið samþykki deildar til að gera hlé á námi sínu eitt eða tvö kennslumisseri, en þó á sama háskólaári, kr. 10.000, sbr. 2. gr. þessara reglna og 5. mgr. 48. gr. reglna nr. 569/2009.

 

c)

Ef stúdent stundar nám á grundvelli samnings milli Háskóla Íslands og annars háskóla, kr. 10.000, sbr. 2. gr. Gestanemandinn tekur að jafnaði eitt til tvö nám­skeið við háskólann sem hluta af námi sínu við viðkomandi heimaskóla þar sem hann greiðir fullt skrásetningargjald.

 

d)

Í því tilviki þar sem ekki er samningur á milli Háskóla Íslands og viðkomandi heimaskóla gestanemanda, kr. 20.000, sbr. 2. gr., enda liggi fyrir skrifleg beiðni frá viðkomandi skóla um að nemandinn taki námskeiðin sem hluta af námi sínu við heimaskólann. Skilyrði er að gestanemandinn greiði fullt skrásetningargjald í sínum heimaskóla og taki að hámarki tvö námskeið (10 einingar) á misseri við Háskóla Íslands.

5. gr.

Undanþága frá greiðslu skrásetningargjalds.

Alþjóðlegir skiptinemar samkvæmt samningum sem Ísland er aðili að og gestanemendur frá öðrum opinberum háskólum á Íslandi eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds, enda hafi þeir greitt við sinn heimaskóla. Heimilt er í samstarfssamningum háskólans við erlenda háskóla, einkum vegna meistara- og doktorsnáms, að leyfa frávik frá greiðslu.

6. gr.

Endurgreiðsla skrásetningargjalds.

Skrásetningargjald er ekki endurkræft ef skráður stúdent hættir námi.

Endurgreiðsla skrásetningargjalds er einungis möguleg ef ákvarðanir háskóladeilda eða annarra opinberra aðila raska forsendum stúdents fyrir því að hefja nám. Rökstutt erindi þar að lútandi skal sent nemendaskrá fyrir upphaf kennslumisseris.

7. gr.

Umsókn um skrásetningu utan auglýstra skrásetningartímabila.

Sviðsstjóra kennslusviðs er heimilt, ef sérstaklega stendur á, s.s. vegna veikinda eða annarra ófyrirséðra ástæðna, að leyfa einstökum stúdentum skrásetningu á öðrum tím­um en kveðið er á um í 2. mgr. 48. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009, sbr. einnig 3. gr. þessara reglna. Rökstudd umsókn þar að lútandi skal send nemendaskrá.

8. gr.

Ráðstöfun skrásetningargjalds

Skrásetningargjaldið er bókfært hjá yfirstjórn háskólans í samræmi við fjárlög. Háskóla­ráð ráðstafar skrásetningargjaldi á þá kostnaðarliði, sem falla undir gjaldið lögum sam­kvæmt.

9. gr.

Umsýslu- og afgreiðslugjald vegna erlendra umsókna.

Umsýslu- og afgreiðslugjald vegna umsókna nemenda með ríkisfang utan Evrópska efna­hags­svæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi er EUR 50.

Umsýslu- og afgreiðslugjald miðast við þá vinnu að taka á móti hverri umsókn, fara yfir hana og tilheyrandi fylgigögn, eiga samskipti við umsækjendur m.a. ef fylgigögn vantar, meta umsókn og afgreiða hana. Miðað er við evrur þegar umsóknirnar koma erlendis frá.

10. gr.

Staðfest vottorð og innsiglun gagna.

 

Afrit brautskráningarskírteinis

kr.

350

 

Ferilsyfirlit

kr.

350

 

Vottorð

kr.

350

 

Námskeiðslýsingar pr. bls., hámark kr. 1.750

kr.

350

 

Staðfesting á skírteini

kr.

350

 

Skjal sem sent er í símbréfi

kr.

350

 

Þýðing eldra brautskráningarskírteinis

kr.

2.500

 

Aukaafrit af staðfestu vottorði pr. bls.

kr.

7

 

Innsiglun gagna pr. umslag

kr.

50

Nemendur Háskóla Íslands geta á hverjum tíma nálgast, án endurgjalds, yfirlit yfir náms­feril sinn í nemendakerfinu, Uglu, og við námslok fá þeir afhent brautskráningarskírteini, braut­skráningar­yfirlit, ásamt viðauka við prófskírteinið á íslensku og ensku. Óski nemendur umfram það eftir staðfestu vottorði um nám sitt við Háskóla Íslands, s.s. staðfestingu á skólavist, námsferilsyfirliti, námskeiðalýsingum eða afriti braut­skrán­ingar­skírteina, greiða þeir fyrir það. Gjald vegna vottorða miðast eingöngu við pappírs- og prentkostnað. Þýðing eldra prófskírteinis miðast við vinnu við þýðingu og kostnaður við innsiglun felst í umslagi og límmiða, án sendingarkostnaðar.

11. gr.

Vinnsla vegna kannana.

 

Vinnsla vegna kannana

kr.

3.000

Kannanir eru sendar skv. beiðni hverju sinni til úrtaks nemenda úr gögnum nem­enda­skrár eftir forskrift verkbeiðanda, kennara eða nemanda. Kannanir eru ein­göngu sendar út vegna verkefna sem vega 10 einingar eða meira. Vinna telst um 1-2 klst. og er ítrekun innifalin.

12. gr.

Stúdentakort.

 

Stúdentakort – rafrænt

kr.

1.500

 

Stúdentakort – rafrænt – skilagjald

kr.

-1.000

Kostnaður felst í korti með örgjörva og prentun á kortið. Hluti kostnaðar er endurgreiddur er korti er skilað.

13. gr.

Umframþjónusta Náms- og starfsráðgjafar.

 

Áhugasviðskönnun Strong

kr.

12.000

 

Námstækninámskeið

kr.

6.000

 

Sjálfstyrkingarnámskeið

kr.

8.000

 

Prófkvíðanámskeið

kr.

8.000

 

Vinnustofa í lokaverkefnum

kr.

2.000

 

Vinnustofa í undirbúningi fyrir atvinnulífið

kr.

2.500

 

Námsval – að hefja háskólanám

kr.

2.000

 

Sálfræðiráðgjöf háskólanema

kr.

2.000

Miðað er við meðaltalskostnað við tímakaup ráðgjafa og launakostnað skrifstofu, auk kostnaðar við pappír og prentun.

14. gr.

Gjöld vegna prófa.

 

Endurtökupróf

 

kr.

6.000

 

Inntökupróf í læknadeild

 

kr.

20.000

 

Fjarpróf utan skipulagðs fjarnáms:

   
  

próf við HÍ haldið á Íslandi

kr.

3.000

  

  " ½ gjald ef fleiri en eitt próf

kr.

1.500

  

próf við HÍ haldið erlendis

kr.

5.000

  

  " ½ gjald ef fleiri en eitt próf

kr.

2.500

  

próf annarra þreytt við HÍ utan prófatíma

kr.

8.000

  

  " ½ gjald ef fleiri en eitt próf

kr.

4.000

  

próf annarra þreytt við HÍ á prófatíma

kr.

5.000

  

  " ½ gjald ef fleiri en eitt próf

kr.

2.500

Kostnaðarliðir eru m.a. laun prófgæslufólks, breytileg laun umsjónarmanna, prófgögn, leiga á tölvuverum sem á við í um 20-30% prófa, umsýsla og póstkostnaður þar sem við á vegna fjarprófa. Enginn fastur kostnaður, s.s. föst laun, er talinn með.

15. gr.

Upptökur á ráðstefnum og eMission.

 

Upptökur á ráðstefnum, fyrsta klukkustund

kr.

10.000

 

Hver klukkustund eftir fyrstu klukkustund

kr.

5.000

 

Fast viðbótargjald ef upptaka er utan dagvinnutíma

kr.

20.000

 

eMission hýsing og umsýsla, árgjald að lágmarki

kr.

30.000

Við upptökur á ráðstefnum er miðað við vélaleigu, laun, forrit, tölvubúnað o.fl. Forritið eMission er notað við upptökur á kennslustundum í námskeiðum sem kennd eru í fjarnámi og eftir atvikum til upptöku á öðrum fyrirlestrum og málstofum sem og við ýmsa námsgagnagerð. Árgjald við hýsingu og umsýslu er áætlað miðað við 10-15 upptökur á ári.

16. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar sem settar eru með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 48. og 71. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009, og taka þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 287/2012 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjón­ustu við nemendur o.fl.

Háskóla Íslands, 7. mars 2014.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 10. mars 2014