Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Laugarnesskóla í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis hússins og miðrýmis skólans í seinni byggingaráfanga hans. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 20. október 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |