Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1217/2013

Nr. 1217/2013 20. desember 2013
REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2014 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu vera sem hér segir fyrir árið 2014:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. laganna skal nema 631.986 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 177.268 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna skal nema 177.268 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 26.081 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 7.550 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 19.630 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laganna skal vera 61.088 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2014. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1211/2012, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2013 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingu.

Velferðarráðuneytinu, 20. desember 2013.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013