1. gr. Við 2. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: D. Lokaritgerð 60 e (ECTS). 2. gr. Á eftir 3. mgr. 5. gr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Í sérstökum tilvikum er meistaranema heimilt að skrifa 60 e (ECTS) lokaritgerð enda hafi hann sýnt framúrskarandi árangur í meistaranáminu. Lengd ritgerðarinnar skal vera á bilinu 180-200 bls. (72.000-90.000 orð). Að öðru leyti gilda reglur þessar og almennar reglur lagadeildar um ritgerðir. 3. gr. Gildistaka og lagastoð. Ákvæði reglna þessara, sem háskólaráð hefur sett, á grundvelli laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999, og 91. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 6. mars 2008. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |