Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 903/2009

Nr. 903/2009 26. október 2009
REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir varðandi Simbabve.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir varðandi Simbabve sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðana­skipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins varðandi Simbabve byggja á sameiginlegri afstöðu ráðs Evrópusambandsins 2004/161/CFSP frá 19. mars 2004 ásamt síðari breyt­ingum, uppfærslum og viðbótum: ákvörðun ráðsins 2007/455/CFSP, sameiginleg afstaða 2008/135/CFSP, ákvörðun ráðsins 2008/605/CFSP og sameiginleg afstaða 2008/632/CFSP og 2009/68/CFSP.

Gerðir Evrópusambandsins, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunar­aðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri þess (http://ec.europa.eu/external_relations/cfsp/sanctions/index_en.htm).

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Vopnasölubann.

Vopnasölubann skal gilda gagnvart Simbabve, sbr. 2.-3. gr. 2004/161/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur.

3. gr.

Landgöngubann.

Einstaklingum, sem tilgreindir eru í viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 4 gr. 2004/161/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur.

4. gr.

Frysting fjármuna.

Frysta skal fjármuni og efnahagslegan auð í eigu aðila sem tilgreindir eru í viðauka, sbr. 5. gr. 2004/161/CFSP og síðari breytingar, uppfærslur og viðbætur.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum sem gripið hefur verið til á grundvelli gerða Evrópusambandsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða nr. 93/2008.

8. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 26. október 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 10. nóvember 2009