1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2013 frá 3. maí 2013 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 45/2012 frá 19. janúar 2012 um breytingu á viðaukanum við reglugerð ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því er varðar efni flutningsskjala. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 16. maí 2013, bls. 8. 2. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli. 3. gr. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 13. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald o.fl. 5. gr. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. febrúar 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson. |