1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 69/2009 frá 23. janúar 2009 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastaðli (IFRS – staðli) 1 og alþjóðlegum reikningsskilastaðli (IAS – staðli) 27. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 69/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 54/2010, 30. september 2010, bls. 255. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 47/2009, 3. september 2009, bls. 41. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 4. október 2010. Árni Páll Árnason. Kjartan Gunnarsson. |