1. gr. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða, að hluta eða öllu leyti, kostnað skv. gjaldskrá þessari vegna þeirra tannréttinga sem skilgreindar eru í reglugerð nr. 1058/2009, sbr. síðari breytingar, enda hafi ekki verið samið um þær skv. IV. kafla laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða kostnað vegna tannréttinga í samræmi við 2. og 3. gr. Endurgreiðslur reiknast út frá einingarverði sérfræðings í tannréttingum, en þó aldrei hærra einingarverði en 50.000 kr. 2. gr. Endurgreiðsla vegna tannréttinga skv. þessari grein skal vera í tvennu eða þrennu lagi að lokinni ísetningu fastra tækja. Sjúkratryggingar endurgreiða 2 einingar samkvæmt stafliðum a. og b. þessarar greinar vegna tannréttingar sem krefst meðferðar með föstum tækjum í annan góminn en 3 einingar samkvæmt stafliðum a. og c. vegna tannréttingar sem krefst meðferðar með föstum tækjum í báða góma. Skilyrði er að framvísað sé reikningum sérfræðings í tannréttingum vegna viðkomandi meðferðar sem eru jafnháir eða hærri en samsvarar endurgreiðslum skv. gjaldskrá þessari: - Ein eining þegar meðferð er hafin.
- Ein eining að meðferð lokinni.
- Tvær einingar að meðferð lokinni. Taki meðferð lengri tíma en 12 mánuði er þó heimilt að skipta greiðslunni í tvennt og greiða 1 einingu að 12 mánum liðnum og 1 einingu að meðferð lokinni.
3. gr. Á reikningi (greiðslukvittun) skulu koma fram eftirtalin gjaldnúmer og heiti verks: | Gjaldnúmer | Heiti verks/Skýringar á greiðslutilhögun | Einingar | | | | | | 809 | Tannrétting / Föst tæki í annan tannbogann | | | | Að lokinni uppsetningu fastra tækja | 1 | | | Að loknu brottnámi fastra tækja | 1 | | | Samtals | 2 | | | | | | 810 | Tannrétting / Föst tæki í báða tannbogana | | | | Að lokinni uppsetningu fastra tækja | 1 | | | Tólf mánuðum síðar | 1 | | | Að loknu brottnámi fastra tækja | 1 | | | Samtals | 3 |
4. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 1058/2009, öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2010. Við gildistöku gjaldskrár þessarar fellur úr gildi gjaldskrá frá 21. desember 2009, sbr. auglýsingu nr. 1059/2009. Sjúkratryggingum Íslands, 18. mars 2010. Steingrímur Ari Arason. Kristján Guðjónsson. |