Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 76/2006

Nr. 76/2006 14. júní 2006
LÖG
um starfsemi innri markaðarins í tengslum við frjálsa vöruflutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins.
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
 
1. gr.
    Ákvæði reglugerðar ráðsins (EB) nr. 2679/98 frá 7. desember 1998, um starfsemi innri markaðarins í tengslum við frjálsa vöruflutninga milli aðildarríkjanna, skulu hafa lagagildi hér á landi í samræmi við bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest. Reglugerðin er prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum.

2. gr.
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 14. júní 2006.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Björn Bjarnason.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

A deild - Útgáfud.: 29. júní 2006