Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 125/2006

Nr. 125/2006 6. október 2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 3 1. febrúar 2004.

HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS
   samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar,
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt:

Að vér samkvæmt tillögu forsætisráðherra staðfestum svohljóðandi reglugerð um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004:

1. gr.

Viðbætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:

Forsætisráðherra fer með hlutafé ríkisins í félagi sem ætlað er að þróa og umbreyta varnarsvæði því á Keflavíkurflugvelli sem koma á í borgaraleg not.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 6. október 2006.

Geir H. Haarde.

Sólveig Pétursdóttir.
(L. S.)

Gunnlaugur Claessen.

Geir H. Haarde.

A deild - Útgáfud.: 9. október 2006