Með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna með síðari breytingum hefur menntamálaráðherra hinn 10. september 2009 samþykkt breytingu á úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2009-2010 samkvæmt fylgiskjali með auglýsingu þessari. Breytingarnar voru samþykktar af stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hinn 9. september 2009 og taka gildi þegar í stað. Menntamálaráðuneytinu, 10. september 2009. Steingrímur J. Sigfússon. Baldur Guðlaugsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |