Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1149/2011

Nr. 1149/2011 16. desember 2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 233, 4. mars 2011, um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2011, með síðari breytingum.

1. gr.

Á eftir 1. ml. 2. mgr. 8. gr. bætist við nýr málsliður sem orðist svo:

Þó skal draga frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í makríl miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. desember 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2011