Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 353/2009

Nr. 353/2009 18. mars 2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu nr. 631/2008 með síðari breytingum.

1. gr.

3. mgr. 5. gr. í fylgiskjali I við reglugerðina fellur brott.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1315/2007 frá 8. nóvember 2007 um öryggiseftirlit með rekstrarstjórnun flugumferðar og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2096/2005, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2008.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 18. mars 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2009