Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
643/2012
|
Breyting á deiliskipulagi Fosshlíðar, Mánahlíðar, Sunnuhlíðar og Barmahlíðar, Akureyri. Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar samþykkti deiliskipulagsbreytingu fyrir Fosshlíð, Mánahlíð, Sunnuhlíð og Barmahlíð þann 5. júlí 2012 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að á lóð nr. 8 við Barmahlíð er heimilað að hafa mænisþak eða einhalla þak. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Akureyrarkaupstaðar, 6. júlí 2012, Arnar Birgir Ólafsson, verkefnisstjóri skipulagsmála.
|
B-deild - Útgáfud.:
20. júlí 2012
|