Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 519/2011

Nr. 519/2011 10. maí 2011
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 721/2009 um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

  1. Í stað orðanna „25“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 20.
  2. Í stað orðanna „25“ í 1., 2., 3., 4. og 5. tölul. 2. mgr. kemur: 30.
  3. Í stað orðanna „fyrirfram samþykkta viðbótarþjálfun“ í 1., 2., 3., 4. og 5. tölul. 2. mgr. kemur: meðferðir umfram 30 út árið, sbr. 1. mgr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr.:

  1. Í stað orðanna „25“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 20.
  2. Á eftir orðinu „af“ og á undan orðinu „endurhæfingarferli“ í 4. tölul. 1. mgr. bætist við orðið: skipulögðu.

3. gr.

Í stað orðanna „25“ í 9. gr. kemur: 20.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 21. og 29. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkra­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júní 2011.

Velferðarráðuneytinu, 10. maí 2011.

Guðbjartur Hannesson.

Anna Lilja Gunnarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 24. maí 2011