I. KAFLI Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar. 1. gr. Sveitarstjórn er skipuð fimm fulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 2. gr. Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 3. gr. Sveitarstjórn fer með stjórn Hörgársveitar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórnin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. 4. gr. Sveitarstjórnin skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna. 5. gr. Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa hans sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 6. gr. Meðal verkefna sveitarstjórnar er: - Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
- Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
- Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
II. KAFLI Um fundarsköp sveitarstjórnar. 7. gr. Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði, þriðja miðvikudag hvers mánaðar. Sveitarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 20.00. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitarstjóra og skylt er að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. 8. gr. Sá sveitarstjórnarmaður sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður sveitarstjórn saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag. Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr. 9. gr. Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórn ekki gert það. 10. gr. Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði. 11. gr. Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfunda í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá sveitarstjórnarfunda skal taka: - Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar sveitarstjóra og starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og oddviti og/eða sveitarstjóri ákveður að taka á dagskrá eða fulltrúi í sveitarstjórn óskar að tekin verði á dagskrá. Sá sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá sveitarstjórnarfunda skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að fulltrúar í sveitarstjórn geti undirbúið sig fyrir fundinn. 12. gr. Sveitarstjóri skal hafa sent fulltrúum í sveitarstjórn fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund. 13. gr. Dagskrá sveitarstjórnarfunda skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórn ákveður. 14. gr. Sveitarstjóri skal senda fulltrúum í sveitarstjórn fundarboð aukafundar í sveitarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. 15. gr. Sá fulltrúi í sveitarstjórn er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn. Oddviti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta sveitarstjórnarmanna skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný. Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta fulltrúa í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu. Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans, sbr. 3. mgr. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti. Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu. Sé enginn oddvita á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita. 16. gr. Sveitarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi fulltrúa í sveitarstjórn til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórninni. 17. gr. Sveitarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Sveitarstjórnarfundi skal halda í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks. Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitarstjórn. 18. gr. Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur fulltrúa í sveitarstjórn er mættur á fundinn og getur sveitarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema sveitarstjórnarfundur sé lögmætur. 19. gr. Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitarstjórnarfundum og er fulltrúum í sveitarstjórn skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitarstjórnarfundum. 20. gr. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra fulltrúa samþykkja slíkt afbrigði. 21. gr. Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: - Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr. Fulltrúa í sveitarstjórn er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé fulltrúi í sveitarstjórn forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn. Sveitarstjórn getur heimilað einstaklingi utan sveitarstjórnar að taka til máls á sveitarstjórnarfundi. 23. gr. Fulltrúa í sveitarstjórn ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Fulltrúar í sveitarstjórn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Fulltrúar í sveitarstjórn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins. Fulltrúa í sveitarstjórn sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli sveitarstjórnar á því. Fulltrúa í sveitarstjórn er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver fulltrúi í sveitarstjórn sé vanhæfur. Fulltrúi í sveitarstjórn sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Fullltrúi í sveitarstjórn sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 24. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á sveitarstjórnarfundum. Fulltrúi í sveitarstjórn sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu fulltrúar í sveitarstjórn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða fulltrúa í sveitarstjórn sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. Fulltrúi í sveitarstjórn skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað. 25. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal fulltrúi í sveitarstjórn taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða. Fulltrúi í sveitarstjórn má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó fulltrúa í sveitarstjórn að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Ekki má fulltrúi í sveitarstjórn lesa upp prentað mál við umræður í sveitarstjórn nema með leyfi oddvita. 26. gr. Beri fulltrúi í sveitarstjórn aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að fulltrúi í sveitarstjórn sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist fulltrúi í sveitarstjórn ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. 27. gr. Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers fulltrúa í sveitarstjórn verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver fulltrúi í sveitarstjórn getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef fulltrúi í sveitarstjórn kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar. 28. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. 29. gr. Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Sveitarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. 30. gr. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá fulltrúa í sveitarstjórn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa í sveitarstjórn óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá fulltrúa í sveitarstjórn í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða fulltrúi í sveitarstjórn greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar fulltrúi í sveitarstjórn, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef fulltrúi í sveitarstjórn óskar og sveitarstjórn samþykkir. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar. 31. gr. Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. 32. gr. Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók sveitarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema sveitarstjórn ákveði annað. Sveitarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir fulltrúar í sveitarstjórn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Fulltrúi í sveitarstjórn sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur. III. KAFLI Um réttindi og skyldur fulltrúa í sveitarstjórn. 33. gr. Fulltrúa í sveitarstjórn er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver fulltrúi í sveitarstjórn er skyldur til að taka að sér þau störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 34. gr. Fulltrúa í sveitarstjórn ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er fulltrúi í sveitarstjórn einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni. 35. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Fulltrúi í sveitarstjórn er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur fulltrúa í sveitarstjórn tekur þátt í atkvæðagreiðslunni. Fulltrúi í sveitarstjórn á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund. 36. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. 37. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn. 38. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að þátttöku í sveitarstjórn er lokið. 39. gr. Nú telur fulltrúi í sveitarstjórn sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórninni án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er fulltrúi í sveitarstjórn af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal sveitarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. 40. gr. Fulltrúi í sveitarstjórn skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis fulltrúa og fundarstaðar sveitarstjórnar getur sveitarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist fulltrúi í sveitarstjórn á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. 41. gr. Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að fulltrúa í sveitarstjórn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega. 42. gr. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur fulltrúa í sveitarstjórn gilda einnig um varamenn sem taka sæti í sveitarstjórninni. IV. KAFLI Nefndir, ráð og stjórnir. 43. gr. Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef fulltrúi í sveitarstjórn óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. 44. gr. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða sveitarstjórnin ákveði annað. Sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara. 45. gr. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórnin ákveði að kjósa aðalmann að nýju. 46. gr. Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. 47. gr. Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. 48. gr. Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar. Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar. 49. gr. Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 32. gr. 50. gr. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá sveitarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar sveitarstjórnarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar sveitarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir sveitarstjórnina. 51. gr. Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: - Félagsmála- og jafnréttisnefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Nefndin fer jafnframt með jafnréttismál skv. 10. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Einnig fer nefndin með málefni húsnæðisnefndar, sbr. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
- Fjallskilanefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn sbr. 3. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög á svæði héraðsnefndar Eyjafjarðar nr. 439/2002. Einn nefndarmanna er jafnframt fjallskilastjóri sveitarfélagsins, skal hann einnig vera formaður nefndarinnar.
- Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
- Skipulags- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
- Menningar- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn.
- Atvinnumálanefnd. Fimm aðalmenn og þrír varamenn.
- Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og þrír varamenn skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 11. gr. laga um Alþingiskosningar nr. 24/2000.
- Skoðunarmenn reikninga. Tveir aðalmenn og tveir varamenn skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Bygginganefnd Eyjafjarðarsvæðis. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, sbr. 1.4 gr. samnings um rekstur á byggingarfulltrúaembætti Eyjafjarðarsvæðis.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 4. gr. laga sambandsins.
- Aðalfundur Eyþings – samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Tveir aðalmenn og tveir varamenn skv. gr. 4.1 í lögum samtakanna.
- Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 13. gr. hafnalaga nr. 61/2003 með síðari breytingum og gr. 3.0 í stofnsamningi byggðasamlagsins.
- Stjórn búfjáreftirlits á svæði 18. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 5. mgr. 10. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002, sbr. 7. gr. reglugerðar um búfjáreftirlit nr. 743/2002.
- Skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, sbr. reglugerð um skólann.
- Haustfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 9. gr. samþykkta byggðasamlagsins.
- Stjórn Minjasafnsins á Akureyri. Einn aðalmaður/varamaður sbr. 5. gr. stofnskrár safnsins.
Auk þess tekur sveitarstjórn þátt í kosningu í nefndir, stjórnir og ráð á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórna í Eyjafirði, eftir því sem við á hverju sinni: - Barnaverndarnefnd.
- Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra.
- Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
- Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
- Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
- Gróðurverndarnefnd.
- Byggingarnefnd Menntaskólans á Akureyri.
- Byggingarnefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
- Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
- Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs.
- Stjórn Flokkunar Eyjafjarðar ehf.
52. gr. Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. V. KAFLI Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins. 53. gr. Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjórann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af sveitarstjórn. 54. gr. Sveitarstjóri undirbýr fundi sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnarinnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn sveitarstjórnarmaður. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum. Sveitarstjórinn hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnarinnar og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórnin hefur ekki ákveðið annað. Sveitarstjórinn er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnarinnar þarf til. Sveitarstjóranum er heimilt, með samþykki sveitarstjórnarinnar, að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru. Sveitarstjórinn er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins. Sveitarstjórinn ákveður hver gegna skuli störfum hans í forföllum hans. 55. gr. Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum. 56. gr. Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. 57. gr. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga. VI. KAFLI Um fjármálastjórn sveitarfélagsins. 58. gr. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir næstkomandi ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins. Sveitarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess. 59. gr. Fjárhagsáætlun skv. 58. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórninni. Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni. 60. gr. Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu á sveitarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í sveitarstjórn með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar. 61. gr. Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins, þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. 62. gr. Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnar skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 58. gr. og þriggja ára áætlun skv. 61. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 60. gr. 63. gr. Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Sveitarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna. Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Fulltrúar í sveitarstjórn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Samþykkt þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Hörgársveitar skv. 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. september 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |