1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011, frá 1. apríl 2011, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 662/2010 frá 23. júlí 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 19 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) nr. 1. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 662/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 22/2011, 14. apríl 2011, bls. 28. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011 er birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 437/2011 í B-deild Stjórnartíðinda (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2010). 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 19. apríl 2011. F. h. r. Helga Jónsdóttir. Þóra M. Hjaltested. |