Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 308/2013

Nr. 308/2013 15. mars 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir II. lið 1. gr. bætist við nýr liður, III. liður, svohljóðandi:

III. Inntaka nemenda í meistaranám í þjóðfræði.

Fjöldi nýrra nemenda í MA námi í þjóðfræði takmarkast við töluna 15.

Ef þeir sem sækja um að hefja námið og uppfylla inntökuskilyrði eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirfarandi sjónarmiðum:

  1. Einkunnum í háskóla. Við mat á umsóknum verður horft, auk meðaleinkunnar, til einkunnar í völdum námskeiðum sem gefa vísbendingu um frammistöðu í MA námi í þjóðfræði.
  2. Lokaverkefnum (einkunn og umsögn ef henni er til að dreifa).
  3. Persónulegum greinargerðum í umsókn um forsendur og áhugasvið.
  4. Meðmælum.
  5. Viðtölum (ef þörf krefur).

2. gr.

Í stað orðanna „I. og II. lið“ í 1. málsl. síðustu málsgreinar 1. gr., um inntökunefnd, kemur: I. – III. lið.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu félagsvísindasviðs, gilda frá og með háskólaárinu 2013-2014 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.

Háskóla Íslands, 15. mars 2013.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 5. apríl 2013