Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 41/2015

Nr. 41/2015 8. janúar 2015

GJALDSKRÁ
fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Blönduósbæ.

1. gr.

Blönduósbær innheimtir gjald fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu skv. gjald­skrá þessari, sbr. III. kafla samþykktar um fráveitur og rotþrær í Blönduósbæ.

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera kr. 75.000.

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, sam­kvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Frá­veitu­gjald skal nema 0,275% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki frá­veitu­gjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fast­eigna­skatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

4. gr.

Árlegt rotþróargjald skal vera eftirfarandi:

 

Rotþró 0-2.000 lítra

kr.

9.300 pr. þró

 

Rotþró 2.001-4.000 lítra

kr.

11.800 pr. þró

 

Rotþró 4.001-6.000 lítra

kr.

12.800 pr. þró

 

Rotþró 6.001 lítra og stærri

kr.

16.100 pr. þró

Gjald miðast við að barkalengd hreinsibíls sé 50 metrar eða styttri. Fyrir barkalengd umfram 50 metra skal eigandi greiða sérstaklega skv. reikningi.

5. gr.

Fyrir aukalosun skal innheimta gjald kr. 9.300 fyrir hverja losun.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með vísan til 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir með síðari breytingum og á grunni samþykktar um fráveitur og rotþrær í Blönduósbæ og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 33/2014. Gjaldskráin var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar og samþykkt í heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra.

Blönduósi, 8. janúar 2015.

Arnar Þór Sævarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2015