1. gr. Byggingarfulltrúi Vestmannaeyja fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa. 2. gr. Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að umhverfis- og skipulagsráð hafi samþykkt útgáfuna, en ráðið annast verkefni byggingarnefndar, sbr. samþykkt um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 630/2004, og 7. gr. laga um mannvirki. 3. gr. Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við umhverfis- og skipulagsráð um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið ráðsins. Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis umhverfis- og skipulagsráðs áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki. 4. gr. Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga, nr. 123/2010, samþykktar um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar og stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eftir því sem við á. 5. gr. Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um afgreiðslur byggingarfulltrúans í Vestmannaeyjum, nr. 200 frá 6. mars 2006. Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. nóvember 2012. F. h. r. Steinunn Fjóla Sigurðardóttir. Hafsteinn Pálsson. |