1. gr. Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðaukum IVA og IVB, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. 2. gr. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollar | Magntollar | Tollskrárnr.: | | | kg/stk. | % | kr./kg/stk. | 0208.9003 | Rjúpur, frystar | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0208.9007 | Beinlaust hreindýrakjöt, fryst | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 878 | | Hreindýrakjöt með beini, fryst: | | | | | 0208.9008 | Skrokkar og hálfir skrokkar | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0208.9009 | Annað | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 878 | | Frjóegg til útungunar: | | | | | 0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domestictus | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0407.1900 | Önnur | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | | | | | | | 0408.1901 | Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í > 5 kg. umbúðum | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 39 | 0408.9901 | Soðin egg í > 10 kg. umbúðum | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 91 | | | | | | | 0603.1202 | Innflutningur á öðrum tíma (nellikur) | 01.05.-30.11.13 | ótilgr. | 0 | 48 | 0603.1905 | Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísar- fuglablóm) | 01.05.-30.11.13 | ótilgr. | 0 | 48 | | | | | | | 0701.9001 | Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0703.9001 | Blaðlaukur | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.1000 | Blómkál og hnappað spergilkál | 03.01.-30.06.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.9002 | Rauðkál | 03.01.-30.06.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0704.9004 | Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.) | 03.01.-30.06.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0706.9002 | Rauðrófur | 03.01.-30.06.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0709.4000 | Selja, önnur en seljurót | 03.01.-30.06.13 | ótilgr. | 0 | 0 | 0709.5100 | Sveppir af ættinni Agaricus | 03.01.-31.12.13 | ótilgr. | 0 | 80 |
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint, skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. 3. gr. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. 4. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. 5. gr. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum. Jafnframt eru felldar úr gildi reglugerð nr. 492/2012 um úthlutun á opnum tollkvótum á hreindýrakjöti og reglugerð nr. 784/2012 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á grænmeti, með síðari breytingu. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. janúar 2013. F. h. r. Halldór Runólfsson. Ólafur Friðriksson. |