1. gr. Á 3. gr. verða eftirfarandi breytingar: Í stað: „0“ á eftir tegundinni síld (íslensk sumargotssíld) í 1. mgr. komi: 15.000. Orðin „síld (íslenskri sumargotssíld)“ í 3. mgr. falli niður. 4. mgr. orðist svo: Þeim leyfilega heildarafla sem úthlutað er til íslenskra síldarskipa samkvæmt reglugerð þessari er úthlutað í þeim tilgangi að rannsaka ástand íslenska sumargotssíldarstofnsins.
2. gr. 1. málsliður 4. mgr. 10. gr. orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild eftirtalinna tegunda en hér segir: Þorskur 12%, ýsa 20%, ufsi 20%, karfi 35%, grálúða 20%, síld 20%, loðna 20%, úthafsrækja 20% og steinbítur 20%, sbr. 13. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. 3. gr. Reglugerð þessi er gefin út með stoð í ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 13. gr. þeirra laga. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. október 2009. F. h. r. Steinar Ingi Matthíasson. Kristján Freyr Helgason. |