Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2010 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu rekstrarársins 2010. Búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa afhendingu þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa, sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2010 er sem hér segir: | | kr. | Mjólk | | 71 hver lítri | Egg | | 408 hvert kg | Kartöflur | | 48 hvert kg | Rófur | | 96 hvert kg | Lambakjöt | | 470 hvert kg | Kjöt af veturgömlu fé | | 315 hvert kg | Annað kjöt af sauðfé | | 107 hvert kg | Ungnautakjöt | | 467 hvert kg | Annað kjöt af nautgripum | | 296 hvert kg | Folaldakjöt | | 240 hvert kg | Annað kjöt af hrossum | | 127 hvert kg | Grísakjöt | | 288 hvert kg | Annað svínakjöt | | 203 hvert kg | Kalkúnar, endur og gæsir | | 407 hvert kg | Annað fuglakjöt | | 320 hvert kg | Fiskur | | 250 hvert kg |
Fjármálaráðuneytinu, 30. desember 2009. F. h. r. Guðmundur Árnason. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |