1. gr. Í stað orðanna „lögum um lánastofnanir“ í 2. tölulið 1. gr. kemur: lögum um fjármálafyrirtæki. 2. gr. Í stað orðsins „ríkissaksóknara“ í 2. mgr. 3. gr. og í stað sama orðs í 7. gr., 8. gr., 9. gr., 10. gr., 11. gr. og 12. gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): ríkislögreglustjóri. 3. gr. Í stað orðsins „bankaeftirliti“ í 7. gr. kemur: Fjármálaeftirlitinu. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 13. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti nr. 80/1993, tekur þegar gildi. Viðskiptaráðuneytinu, 20. febrúar 2006. Valgerður Sverrisdóttir. Ólöf Embla Einarsdóttir. |