Bókun um breytingu á samningi milli lýðveldisins Íslands og Stórhertogadæmisins Lúxemborgar til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu að því er varðar skatta á tekjur og eignir, sem gerð var í Lúxemborg 28. ágúst 2009, öðlaðist gildi 28. apríl 2010. Enn fremur var gengið frá samkomulagi í formi orðsendingaskipta að því er varðar samninginn og bókunina í Lúxemborg og Brussel 28. ágúst 2009 og öðlaðist það gildi 28. apríl 2010. Bókunin er birt sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og samkomulagið sem fylgiskjal 2. Þetta er hér með gert almenningi kunnugt. Utanríkisráðuneytinu, 7. júní 2010. Össur Skarphéðinsson. Einar Gunnarsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |