Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 219/2009

Nr. 219/2009 24. febrúar 2009
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 91/2001 um afgreiðslu lyfseðla, áritun og afhendingu lyfja, með síðari breytingum.

1. gr.

4. mgr. 4. gr. fellur niður.

2. gr.

1. málsl. 2. mgr. 7. gr. orðast svo:

Skrifi útgefandi lyfseðils ekki ® fyrir aftan heiti lyfs, er lyfjafræðingi heimilt að breyta ávísun læknis í annað samheitalyf í sama styrkleika og sambærilegu magni, óski sjúklingur þess, enda sé um að ræða lyf á viðmiðunarverðskrá sem birt er með lyfjaverðskrá.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 23. febrúar 2009.

Ögmundur Jónasson.

Berglind Ásgeirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 25. febrúar 2009