Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
78/2012
|
FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr.
Við lokamálslið 2. mgr. 1. gr. laganna bætist: þ.m.t. vörslusviptingu.
2. gr.
Á eftir 6. gr. laganna kemur ný grein, 6. gr. a, er orðast svo: Innheimtuaðili skal, hvort sem er við frum- eða milliinnheimtu, afla skriflegs samþykkis skuldara áður en lausafé er tekið úr vörslum skuldara, enda sé skuldari í vanskilum með afborganir eða lánskostnað. Skal innheimtuaðili jafnframt láta skuldara í té afrit skriflegs samþykkis í síðasta lagi samtímis afhendingu lausafjármunar. Liggi slíkt samþykki ekki fyrir verður innheimtuaðili að leita aðfarar eftir reglum aðfararlaga, nr. 90/1989.
3. gr.
Við 1. mgr. 18. gr. laganna bætist nýr stafliður, b-liður, svohljóðandi: 6. gr. a um vörslusviptingu.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 29. júní 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Svandís Svavarsdóttir.
|
A-deild - Útgáfud.:
4. júlí 2012
|