Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1134/2013

Nr. 1134/2013 18. desember 2013
REGLUGERÐ
um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði í des­ember 2013.

2. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 og verið skráður á atvinnuleysisskrá í samtals tíu mánuði á árinu 2013 á rétt á des­emberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði að fjárhæð kr. 51.783 enda hafi við­kom­andi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysis­tryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

3. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 og verið skráður á atvinnuleysisskrá samtals í tíu mánuði á árinu 2013 en tryggður hlutfallslega á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

4. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2013 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 5. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2013 ásamt því að hafa verið hlutfallslega tryggður á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá á árinu 2013, sbr. þó 5. gr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

5. gr.

Desemberuppbót skv. 4. gr. skal aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 12.946 miðað við að viðkomandi hafi átt rétt á óskertu tryggingarhlutfalli skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Lágmarks desemberuppbót er ¼ hluti sömu fjárhæðar.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari skulu greiddar út eigi síðar en 24. desember 2013.

Velferðarráðuneytinu, 18. desember 2013.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2013