Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1209/2014

Nr. 1209/2014 22. desember 2014
REGLUGERÐ
um (10.) breytingu á reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur.

1. gr.

4. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Skilagjald skal nema 14,41 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu.

2. gr.

3. málsl. og 4. málsl. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Skal endurgreiðslan þannig nema samtals 14,41 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúða­einingu. Þó skulu líða 60 dagar frá hækkun álagðs skilagjalds þar til Endur­vinnslan hf. hækkar endurgreiðslu til neytenda fyrir sérhverjar umbúðir, sem skilað verður, úr 15,00 kr. í 16,00 kr. með virðisaukaskatti.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. gr. laga um nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, öðlast gildi 1. janúar 2015.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. desember 2014.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Jón Geir Pétursson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014