Ráðuneytinu hefur borist tilkynning um að stjórnmálasamtökin Lýðveldisflokkurinn hafi breytt heiti sínu í Flokkur heimilanna. Með auglýsingu nr. 209 4. mars 2013 ákvað ráðuneytið listabókstafinn I fyrir stjórnmálasamtökin Lýðveldisflokkinn. Ráðuneytið ákveður hér með að stjórnmálasamtökin, sem nú heita Flokkur heimilanna, hafi skráðan listabókstafinn I. Þetta auglýsist hér með samkvæmt 38. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24 16. maí 2000, sbr. 162. gr. laga nr. 162 28. desember 2010. Innanríkisráðuneytinu, 8. apríl 2013. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |