Frestur ríkisskattstjóra til að úrskurða kærur vegna álagningar opinberra gjalda á menn árið 2011, sbr. auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, dags. 25. júlí 2011, er hér með framlengdur til 30. nóvember 2011. Ákvörðun þessi, sem tekin er samkvæmt heimild í 120. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, tekur þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 28. október 2011. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |