Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
602/2012
|
1. gr. Frá og með 11. júlí 2012 eru strandveiðar bannaðar á svæði D, frá sveitarfélaginu Hornafirði til Borgarbyggðar, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 206, 29. febrúar 2012, um strandveiðar fiskveiðiárið 2011/2012. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 206, 29. febrúar 2012, um strandveiðar fiskveiðiárið 2011/2012, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. júlí 2012. F. h. r. Jóhann Guðmundsson. Kristján Freyr Helgason.
|
B-deild - Útgáfud.:
10. júlí 2012
|