Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 470/2013

Nr. 470/2013 21. maí 2013
AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

1. gr.

Frá og með 23. maí til og með 31. maí 2013 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, samkvæmt 5. mgr. sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 304/2013, um strandveiðar fiskveiðiárið 2012/2013.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 5. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 304/2013, um strandveiðar fiskveiðiárið 2012/2013, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Fiskistofu, 21. maí 2013.

Hrefna Gísladóttir,
sviðsstjóri fiskveiðistjórnunarsviðs.

Jón Valgeir Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 21. maí 2013