1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 824/2009 frá 9. september 2009 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS – staðal 39 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS – staðal 7. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 824/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 54/2010, 30. september 2010, bls. 292. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 19/2010, 22. apríl 2010, bls. 27. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 4. október 2010. Árni Páll Árnason. Kjartan Gunnarsson. |