1. gr. 1. málsliður 2. mgr. 22. gr. orðast svo: Doktorsnám við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, guðfræði- og trúarbragðafræðideild og sagnfræði- og heimspekideild er þriggja ára fullt nám, en doktorsnám við íslensku- og menningardeild er að jafnaði fjögurra ára fullt nám þótt heimilt sé að ljúka því á skemmri tíma. 2. gr. Reglur þessar, sem rektor hefur samþykkt f.h. háskólaráðs, að fenginni tillögu hugvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar taka þegar gildi. Háskóla Íslands, 11. desember 2012. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |