1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókunar 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2012 frá 1. nóvember 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 223/2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð, í því skyni að laga I. og IV. viðauka við hana að tækniframförum. 2. gr. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 29. nóvember 2012, bls. 475. 3. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðareftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. febrúar 2013. F. h. r. Halldór Runólfsson. Baldur P. Erlingsson. |