Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 228/2012

Nr. 228/2012 21. febrúar 2012
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Blönduósbæ.

1. gr.

Af hundum í Blönduósbæ skal bæjarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari sem eru ætluð til að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald á Blönduósi, nr. 242/2004.

2. gr.

Við umsókn um skráningu hunds í fyrsta sinn skal innheimta skráningargjald að upphæð kr. 2.500 ásamt árlegu leyfisgjaldi vegna hunda að upphæð kr. 8.000 miðað við heilt ár. Leyfisgjaldið lækkar svo eftir því sem líður á árið þegar kemur til fyrstu skráningar, gjaldið er í janúar - mars 100%, apríl - júní 75%, júlí - september 50% og október - desember 25%. Leyfisgjaldið er ekki endurgreitt þrátt fyrir breytingar á hundahaldi innan ársins.

3. gr.

Greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu er innifalin í gjaldi sem innheimt er samkvæmt 2. gr. Í þessu sambandi vísast til e- og f-liða 2. gr. samþykktar um hundahald á Blönduósi nr. 242/2004, sem kveða á um skyldur hundaeigenda til að hafa hunda sína ábyrgðar­tryggða og er tryggingin innfalin í gjaldinu, enda sé það í skilum.

Árleg hundahreinsun er á ábyrgð og framkvæmd hennar í höndum hundaeigenda og ber þeim að snúa sér til dýralæknis, sem annast hana á kostnað hundaeigenda.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:

Fyrsta afhending hunds, kr. 8.400
Önnur afhending hunds, kr. 15.120
Þriðja afhending hunds, kr. 23.100
Við afhendingu hunds sem ekki er gilt leyfi fyrir kr. 18.165

Að auki skal umráðamaður hunds greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

5. gr.

Gjalddagi leyfisgjalda er 1. mars og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir lifa af árinu.

6. gr.

Eigendur blindra-, leitar- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu gjalda samkvæmt 2. og 3. gr., enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi.

7. gr.

Ofangreind gjaldskrá bæjarstjórnar Blönduósbæjar staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, með síðari breytingum, um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um hundahald á Blönduósi, nr. 242/2004, til að öðlast gildi þegar við birtingu. Jafnframt falla úr gildi eldri gjaldskrár nr. 178/2002, 151/2006, 224/2007 og 492/2011.

Samþykkt í bæjarstjórn Blönduósbæjar 21. desember 2011 og í heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra 31. janúar 2012.

Blönduósi, 21. febrúar 2012.

Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 6. mars 2012