Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 549/2010

Nr. 549/2010 15. júní 2010
REGLUR
fyrir Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir við Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Stofnun um sjálfbæra þróun er rannsókna- og þjónustustofnun sem starfrækt er við Háskóla Íslands. Stofnunin er þverfræðileg og heyrir undir fræðasvið háskólans sameiginlega, en er vistuð hjá verkfræði- og náttúruvísindasviði. Stofnunin er kennd við Sæmund fróða og er vettvangur fyrir þverfræðileg viðfangsefni Háskóla Íslands á sviði sjálfbærrar þróunar. Fræðasvið háskólans gera með sér nánara samkomulag um samstarf á vettvangi stofnunarinnar og um fjármögnun samstarfsverkefna.

2. gr.

Hlutverk.

Meginhlutverk stofnunarinnar er að vera vettvangur fyrir þverfræðilegar rannsóknir háskólakennara, sérfræðinga og framhaldsnema á sviði sjálfbærrar þróunar. Stofnunin skal leitast við að efla slíkar rannsóknir við Háskóla Íslands, m.a. með samvinnu við deildir og aðrar stofnanir háskólans. Þá skal stofnunin vera samstarfsvettvangur við aðila utan háskólans, svo sem stjórnvöld, sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.

Ennfremur skal stofnunin eftir föngum:

  1. taka virkan þátt í alþjóðlegu rannsóknasamstarfi,
  2. veita kennurum og framhaldsnemum rannsóknaraðstöðu á sviðum stofnunarinnar,
  3. veita sérfræðiaðstoð, ráðgjöf og annast fræðslustarfsemi, en þessi verkefni eru unnin gegn greiðslu eftir því sem við á,
  4. styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf á fræðasviðum stofnunar­innar.
  5. stuðla að hagnýtingu nýjunga á fræðasviðum stofnunarinnar.

3. gr.

Skipulag.

Stjórn getur ákveðið að setja á fót faglega sjálfstæðar rannsóknastofur á grundvelli verkefna stofnunarinnar og setur þeim starfsreglur. Heimilt er að gera samninga við aðila utan Háskóla Íslands um rekstur einstakra stofa.

4. gr.

Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, húsnæði og búnað, svo sem kostur er og eftir því sem um er samið við samstarfsaðila ef við á. Stofnunin veitir starfsliði sínu aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

5. gr.

Stjórn.

Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs skipar stofnuninni fimm manna stjórn til þriggja ára í senn samkvæmt tilnefningu frá hverju fræðasviði háskólans. Æskilegt er að tveir stjórnarmanna séu í aðalstarfi utan Háskóla Íslands. Formaður stjórnarinnar er skipaður samkvæmt tilnefningu forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.

6. gr.

Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með a.m.k. þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forsetar fræðasviða eða rektor bera fram slíka ósk og hefur þá hann eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum. Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send rektor

Framkvæmdastjóri stofnunarinnar situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

7. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórn stofnunarinnar fjallar um öll sameiginleg málefni hennar og ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Stjórnin afgreiðir rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir stofnunina og hefur yfirsýn yfir starfsemi hennar í heild. Hún skiptir fjárveitingu stofnunarinnar milli viðfangsefna. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

Fjárhagsáætlun skal lögð fyrir forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs til samþykktar, ásamt ársreikningi.

Formaður stjórnar kemur fram fyrir hönd stjórnarinnar og er málsvari hennar. Stjórn er heimilt að fela formanni stjórnar, eða varaformanni í fjarveru formanns, ákvörðunarvald í málum stjórnar á milli stjórnarfunda. Hann skal gera grein fyrir ákvörðunum sínum á næsta stjórnarfundi.

8. gr.

Starfslið.

Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs ræður framkvæmdastjóra stofnunarinnar og for­stöðu­menn stofa samkvæmt tillögu stjórnar. Framkvæmdastjóri ræður annað starfs­fólk.

9. gr.

Framkvæmdastjóri og forstöðumenn stofa.

Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri stofnunarinnar, aflar henni verkefna og tekna, annast áætlanagerð, fjármál og starfsmannamál og sér að öðru leyti um framkvæmd á þeim málum, sem stjórnin felur honum. Framkvæmdastjóri er í starfi sínu ábyrgur gagnvart stjórn.

Forstöðumenn stofa skulu að jafnaði vera í starfi kennara eða sérfræðinga við Háskóla Íslands. Hlutverk þeirra er að afla rannsóknaverkefna og samstarfsaðila. Forstöðumenn stofa bera fjárhagslega ábyrgð á viðkomandi stofu gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn.

10. gr.

Ársfundur.

Stjórn stofnunarinnar efnir til ársfundar hennar þar sem stefna og starfsemi stofn­unar­innar eru kynntar. Ársfundur er öllum opinn og skal auglýstur opinberlega bæði innan háskólans og á almennum vettvangi. Stjórnin býður gestum til þátttöku á fundinum. Ársskýrsla stofnunarinnar og fjárhagsáætlun næsta árs skulu liggja frammi á fundinum.

11. gr.

Fjármál.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Tekjur stofn­unar­innar eru eftirfarandi:

  1. fjárveitingar frá háskólaráði samkvæmt samningi á milli fræðasviða, sbr. 1. gr.
  2. fé sem aflað er til starfseminnar með samningum við samstarfsaðila,
  3. styrkir til einstakra verkefna eða starfseminnar í heild,
  4. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  5. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlag úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Stjórn stofnunarinnar ákveður stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum stofnunarinnar í samræmi við gildandi reglur háskólans.

Ef um er að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starf­semi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnis­laga.

12. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.

Með gildistöku reglna þessara falla úr gildi reglur nr. 526/2005, um Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir við Háskóla Íslands.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 2. júlí 2010