Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 291/2007

Nr. 291/2007 30. mars 2007
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I. kafla:

  1. Orðið Bólivía fellur brott.
  2. Við orðið „Brúnei“ bætist orðið „Darússalam“.
  3. Í stað orðanna „Stóra-Bretland, þ.m.t.: Bermúda, Turks- og Caicos-eyjar, Cayman-eyjar, Anguilla, Montserrat, Bresku Jómfrúreyjar, St. Helena, Falklandseyjar og Gíbraltar“ kemur: Stóra-Bretland, þ.m.t. handhafar vegabréfa fyrir „British Nationals (Overseas)“.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, II. kafla:

  1. 10. tl. orðist svo: Viðurkenndir flóttamenn og þeir sem eru án ríkisfangs, sem búsettir eru í Evrópusambandsríki og eru handhafar ferðaskilríkja sem gefin eru út af því ríki.
  2. Við bætist nýr töluliður, númer 13, er orðast svo:
    1. Skólanemendur, sem þurfa að hafa vegabréfsáritun til að mega koma til landsins en búsettir eru í Evrópusambandsríki sem beitir Evrópuráðs­ákvörðun 94/795/JHA frá 30. nóvember 1994, þegar þeir eru á skólaferðalagi með kennara frá skólanum.

    3. gr.

    Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.

    Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 30. mars 2007.

    Björn Bjarnason.

    Bryndís Helgadóttir.

    B deild - Útgáfud.: 3. apríl 2007