Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1158/2005

Nr. 1158/2005 21. desember 2005

AUGLÝSING
um nýtt fasteignamat.

1. gr.

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, hefur yfirfasteignamatsnefnd ákveðið framreiknistuðla fyrir skráð matsverð fasteigna á öllu landinu með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá síðasta viðmiðunartíma matsins til 31. desember nk. Nefndin hefur ákveðið framreikning á matsverði fasteigna þannig:

  1. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða og matsverð sumarhúsa og sumarhúsalóða, sbr. þó stafliði b, c, d, e, f, g og h, hækki um 10% og verður framreikningsstuðull þeirra samkvæmt því 1,10.
  2. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða, bújarða ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum og matsverð hlunninda, sbr. þó stafliði e, g og i, hækki um 5% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,05.
  3. Matsverð sérbýlishúsa og sérbýlishúsalóða á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Mosfellsbæ), í Hveragerði og Þorlákshöfn hækki um 35% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,35.
  4. Matsverð sérbýlishúsa og sérbýlishúsalóða í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði, Vatnsleysustrandarhreppi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri, Fellabæ, Egilsstöðum og Selfossi, svo og sérbýlishúsa og sérbýlishúsalóða í þéttbýli í Hvalfjarðarstrandarhreppi, Skilmannahreppi, Innri-Akraneshreppi, Eyjafjarðarsveit, fv. Glæsibæjarhreppi og Svalbarðsstrandarhreppi, ennfremur matsverð fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi og Mosfellsbæ), Hveragerði og Þorlákshöfn hækki um 30% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,30.
  5. Matsverð fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði, Vatnsleysustrandarhreppi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri, Fellabæ, Egilsstöðum og Selfossi, svo og fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða í þéttbýli í Hvalfjarðarstrandarhreppi, Skilmannahreppi, Innri-Akraneshreppi, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppi og fv. Glæsibæjarhreppi, ennfremur matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Garði, á Ísafirði, Súðavík, Sauðárkróki, Húsavík, Þórshöfn, Seyðisfirði, Fáskrúðsfirði (Búðum), Höfn, Hvolsvelli, Hellu, svo og í þéttbýli í Fjarðabyggð, Hrunamannahreppi, Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð, ennfremur matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í Reykjavík, Kópavogi, Akranesi, Borgarnesi, Fellabæ, Egilsstöðum og Selfossi hækki um 20% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,20.
  6. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Grundarfirði, Stykkishólmi, Bolungarvík, Hnífsdal, Flateyri, Suðureyri, Hólmavík, Siglufirði, Hvammstanga, Blönduósi, Grenivík, Eyrarbakka og Stokkseyri, svo og í þéttbýli í Snæfellsbæ, Dalvíkurbyggð, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi hækki um 15% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,15.
  7. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða á Seltjarnarnesi og Álftanesi, í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði, Garði, Vatnsleysustrandarhreppi, Hvalfjarðarstrandarhreppi, Skilmannahreppi, Innri-Akraneshreppi, Grundarfirði, Stykkishólmi, á Akureyri, Hvolsvelli og Hellu, svo og í þéttbýli í Snæfellsbæ, ennfremur matsverð bújarða, ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum á Suðvesturlandi og Vesturlandi frá og með fv. Austur-Eyjafjallahreppi vestur og norður um að og með Eyja- og Miklaholtshreppi, í Eyjafirði og á Fljótsdalshéraði (að meðtöldum Fljótsdal) hækki um 10% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,10.
  8. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Búðardal, Þingeyri, Tálknafirði, Patreksfirði, Bíldudal, Grímsey, Kópaskeri og Raufarhöfn, ennfremur fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða í Vestmannaeyjum hækki um 5% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,05.
  9. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða á Vestfjörðum, Siglufirði, Húsavík, Raufarhöfn, Vopnafirði, Höfn, Vestmannaeyjum, svo og í þéttbýli í Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi verði óbreytt og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,00.

Við framreikning ársins á ofangreindum grundvelli skal höfð hliðsjón af fyrningu samkvæmt reglum Fasteignamats ríkisins fyrir einstakar tegundir eigna.

Ofangreind breyting fasteignamats er miðuð við fasteignamatsverð samkvæmt fasteignaskrá þeirri er gildi tók 31. desember 2004 með síðari breytingum ákveðnum af Fasteignamati ríkisins og yfirfasteignamatsnefnd.

2. gr.

Á vegum Fasteignamats ríkisins hefur verið samin ný fasteignaskrá, þar sem matsverð einstakra fasteigna er skráð samkvæmt þeim framreiknistuðlum sem ákveðnir hafa verið samkvæmt framanskráðu. Hin nýja fasteignaskrá inniheldur einnig þær matsbreytingar sem Fasteignamat ríkisins eða yfirfasteignamatsnefnd hefur gert á einstökum fasteignum svo sem við endurskoðun á eldra mati og vegna úrskurða á kærum er kunna að hafa leitt til matsbreytinga.

3. gr.

Fjármálaráðherra hefur staðfest heildareintak hins nýja fasteignamats eins og það hefur verið ákveðið með ofangreindum hætti. Fasteignaskráin mun liggja frammi til sýnis á skrifstofu Fasteignamatsins, Borgartúni 21, Reykjavík, frá og með 31. desember nk. Frá sama tíma mun hið nýja matsverð einnig koma fram í uppflettingu hjá þeim aðilum sem eru í beinu tölvusambandi við stofnunina. Jafnframt verður eigendum fasteigna send sérstök tilkynning um breytingu á matsverði viðkomandi fasteigna.

4. gr.

Með vísan til laga nr. 6/2001 tilkynnir ráðuneytið hér með að nýtt matsverð fasteigna, sem ákveðið er með ofangreindum hætti og fram kemur í staðfestri skrá Fasteignamats ríkisins, og tekur gildi 31. desember 2005.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi auglýsing nr. 1059 frá 23. desember 2004.

Fjármálaráðuneytinu, 21. desember 2005.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Þórhallur Arason.


B-deild - Útgáfud.: 30. desember 2005

  Til baka