Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 654/2013

Nr. 654/2013 11. janúar 2013
REGLUR
byggðasamlags um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra um afgreiðslu umsóknar um skammtímavistun fyrir fatlað fólk.

1. gr.

Markmið.

Skammtímavistun er ætlað að létta álagi af fjölskyldum fatlaðra barna og stuðla með þeim hætti að því að börn geti búið sem lengst í heimahúsum. Henni er ætlað að veita tímabundna dvöl til hvíldar og/eða vegna erfiðra heimilisaðstæðna, svo sem vegna veikinda eða annars álags.

Fötluð ungmenni og fullorðnir, sem búa í heimahúsum, skulu einnig eiga kost á skammtímavistun með það markmið að létta álagi af fjölskyldum þeirra og veita hinum fötluðu tilbreytingu eða til undirbúnings flutnings úr foreldrahúsum.

Í skammtímavistun skal veitt umönnun og gæsla og þjálfun þar sem það á við.

2. gr.

Skipulag.

Skammtímavistun getur verið tvenns konar:

a) reglubundin dvöl samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun.

b) dvöl samkvæmt ósk og ákvörðun hverju sinni til að létta álagi af fjölskyldum, m.a. vegna óvæntra áfalla í fjölskyldum, eða bráðavistun.

Ástæður bráðavistunar geta verið t.d. veikindi, andlát eða önnur erfið tímabil hjá fjölskyldunni. Ferðalög og önnur leyfi fjölskyldu, sem hægt er að skipuleggja með fyrirvara, teljast ekki réttmætar ástæður fyrir bráðavistun.

3. gr.

Hverjir eiga kost á skammtímavistun.

Einstaklingur á rétt á þjónustu sé hann með andlega eða líkamlega fötlun og þarfnast sérstakrar þjónustu og stuðnings.

Foreldrar skulu eiga kost á skammtímavistun fyrir fötluð börn sín þegar þörf krefur.

4. gr.

Umsókn.

Sótt er um þjónustu, á þar til gerðum eyðublöðum, hjá félagsþjónustu þess sveitarfélags sem viðkomandi á lögheimili í eða þeirri félagsþjónustu sem ber ábyrgð á þjónustunni.

5. gr.

Þjónustuúrræði.

Eftirfarandi þjónusta er í boði fyrir einstaklinga með lögheimili á starfssvæði byggðasamlagsins:

Skammtímavistun Dalvíkurbyggð.

Skammtímavistun Sauðárkróki.

6. gr.

Fundur ráðgjafa félagsþjónustu með umsækjanda eða aðstandanda hans.

Fundur með ráðgjafa skal haldinn innan tveggja vikna frá því að umsókn barst. Lagt er mat á þörf fyrir þjónustu í samráði við umsækjanda. Sé niðurstaða matsins sú að þörf fyrir þjónustu sé önnur eða víðtækari en veitt er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga skal sérstakt teymi fagfólks meta sérstaka stuðningsþörf umsækjanda.

7. gr.

Teymi fagfólks.

Teymi fagfólks skv. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks starfar á hverju þjónustusvæði, þ.e. Húnaþingi vestra, Austur-Húnavatnssýslu, Skagafirði, Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Félagsmálastjóri á hverju svæði ber ábyrgð á því að teymi sé virkjað. Teymið samanstendur að lágmarki af þremur fulltrúum skipuðum af félagsmálastjóra.

a) Teymið metur heildstætt sérstaka stuðningsþörf í samráði við umsækjanda eða aðstandanda hans. Niðurstaða mats á þörf og úrræði skal liggja fyrir eigi síðar en þremur mánuðum eftir að umsókn berst teyminu. Ef umsækjandi er ekki sáttur við mat teymis fagfólks þá ber ráðgjafa að aðstoða umsækjanda við að koma þeim athugasemdum til þjónustuhóps.

b) Teymið sendir niðurstöðurnar til umsækjanda. Teymið skráir umfjöllun um umsóknir og ákvarðanir í fundargerð.

8. gr.

Málsmeðferð.

Ákvörðun um þjónustu er tekin á fundi forstöðumanns skammtímavistunar og félagsmálastjóra eða ráðgjafa í umboði hans. Ráðgjafi viðkomandi félagsþjónustu ber ábyrgð á að boða fund þegar þjónustumat liggur fyrir.

Umsækjendur fá skriflegt svar um afgreiðslu innan fjögurra vikna frá því að umsókn berst. Í jákvæðu svari kemur annaðhvort fram að viðkomandi sé kominn á biðlista eftir skammtímavistun eða þá að hann fær tilboð um dvöl í skammtímavistun. Synjunarbréf innihalda rökstuðning fyrir synjuninni og upplýsingar um hvert umsækjandi geti snúið sér ef hann er ósáttur með niðurstöðuna.

Komist afgreiðslufundur ekki að niðurstöðu skal málinu vísað til þjónustuhóps.

9. gr.

Tilboð um þjónustu.

Eftir að hafa fengið jákvætt svar um skammtímavistun er umsækjandi og í sumum tilvikum aðstandandi hans boðaður á fund hjá viðkomandi félagsþjónustu til að undirbúa væntanlega þjónustu.

10. gr.

Samningur um þjónustu.

Umsækjandi og þjónustuaðili gera með sér skriflegan samning um hvernig þjónustan er veitt. Notast skal við þar til gerð eyðublöð.

11. gr.

Einstaklingsbundin þjónustuáætlun.

Jafnhliða samningi um þjónustu skal gerð þjónustuáætlun sem felur í sér skýr markmið sem vinna skal að með því að veita stuðning og samhæfa úrræði mismunandi þjónustuaðila. Gerð áætlunar er á ábyrgð þeirra sem sjá um framkvæmd þjónustunnar. Þjónustuáætlunin skal endurmetin eigi sjaldnar en einu sinni á ári.

12. gr.

Eftirfylgni þjónustu.

Það er á ábyrgð ráðgjafa og forstöðumanns skammtímavistunar að þjónustuþörf sé endurmetin reglulega og leitað eftir mati notenda á gæðum þjónustunnar.

13. gr.

Yfirlit yfir þjónustu og biðlista.

Þjónustuhópur hefur yfirlit yfir þjónustu og biðlista. Ef þörf er á sérstöku samráði milli þjónustusvæða t.d. vegna forgangsröðunar fjallar þjónustuhópur um það og tekur ákvörðun.

14. gr.

Niðurstaða synjunar og málskot til málsmeðferðarnefndar.

Kynna skal umsækjanda niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem forsendur synjunar eru rökstuddar. Synjun þjónustuhóps má skjóta til málsmeðferðarnefndar byggðasamlags um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra, og skal það gert skriflega innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda berst vitneskja um synjun. Málsmeðferðarnefnd skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.

15. gr.

Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.

Umsækjandi getur skotið ákvörðun þjónustuhóps til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála hjá velferðarráðuneytinu. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því umsækjanda berst vitneskja um ákvörðun nefndarinnar.

16. gr.

Heimildir til ákvarðana skv. reglum þessum.

Þjónustuhópur byggðasamlagsins tekur ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði stjórnar byggðasamlags.

17. gr.

Birting og endurskoðun.

Reglur þessar sem settar eru skv. 2. mgr. 5. gr., sbr. 22. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 55. gr. laganna. Reglurnar skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti að teknu tilliti til viðeigandi þjónustu- og gæðaviðmiða, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.

18. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem samþykktar voru í stjórn byggðasamlagsins þann 4. desember 2012, öðlast þegar gildi.

Skagafirði, 11. janúar 2013.

F.h. samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra,
Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 10. júlí 2013