Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1083/2006

Nr. 1083/2006 20. desember 2006
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2007.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2007 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu fyrir árið 2007.

Til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu skal telja búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa afhendingu þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afraksturs eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir, sem falla undir reglur þessar, afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2007 er sem hér segir:

Mjólk

 

45 kr. hver lítri

Egg

 

290 kr. hvert kg

Kartöflur

 

41 kr. hvert kg

Rófur

 

85 kr. hvert kg

Lambakjöt

 

360 kr. hvert kg

Kjöt af veturgömlu fé

 

320 kr. hvert kg

Annað kjöt af sauðfé

 

140 kr. hvert kg

Ungnautakjöt

 

410 kr. hvert kg

Annað kjöt af nautgripum

 

290 kr. hvert kg

Folaldakjöt

 

225 kr. hvert kg

Annað kjöt af hrossum

 

90 kr. hvert kg

Grísakjöt

 

260 kr. hvert kg

Annað svínakjöt

 

195 kr. hvert kg

Kalkúnar, endur og gæsir

 

425 kr. hvert kg

Annað fuglakjöt

 

240 kr. hvert kg

Fiskur

 

250 kr. hvert kg

Fjármálaráðuneytinu, 20. desember 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2006