1. gr.
Þann 30. júní 2015 eru strandveiðar bannaðar á svæði B, Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 349/2015, um strandveiðar fiskveiðiárið 2014/2015.
2. gr.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Fiskistofu, 25. júní 2015.
Eyþór Björnsson fiskistofustjóri.
Jón Valgeir Guðmundsson.
|