Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1004/2011

Nr. 1004/2011 20. október 2011
GJALDSKRÁ
Sjúkratrygginga Íslands fyrir einnota áhöld og efni.

1. gr.

Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið gjaldskrá fyrir einnota áhöld og efni vegna aðgerða er sjúkratryggðir einstaklingar undirgangast hjá sérfræðingum í handlæknis­greinum og svæfingum og sem ekki hefur verið samið um, sbr. fylgiskjal 1.

2. gr.

Gjaldskráin gildir vegna endurgreiðslu á kostnaði við einnota áhöld og efni vegna aðgerða hjá sérgreinalæknum, fyrirtækjum þeirra eða hópum sérgreinalækna sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt að uppfylli lágmarkskröfur Sjúkratrygginga Íslands vegna skurðstofureksturs utan sjúkrahúsa, sbr. fylgiskjal 2, og önnur sett skilyrði, sbr. þau sem gilda um samningsbundna þjónustu skv. 45. gr. og 46. gr. laga um sjúkratryggingar.

Endurgreiðsla á grundvelli gjaldskrár þessarar er háð reglugerð sem velferðarráðherra setur, sbr. 2. mgr. 38. gr. laga um sjúkratryggingar.

Einingarverð gjaldskrár skal vera 184,40 kr.

Ef tvö eða fleiri verk eru framkvæmd samtímis reiknast efnisgjald fyrir þá aðgerð sem hæst ber efnisgjald en ekkert fyrir önnur.

3. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. nóvember 2011 og gildir til og með 31. mars 2012.

Sjúkratryggingum Íslands, 20. október 2011.

Steingrímur Ari Arason.

Kristján Guðjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 31. október 2011