1. gr. Við upptalningu á skaðvöldum í viðauka I með reglugerðinni bætist eftirfarandi: | Phytophthora ramorum | lyngrós, lerki, eik o.fl. |
2. gr. Við viðauka III bætist eftirfarandi: trjáættkvísl sem bannað er að flytja til landsins (fræ eru undanskilin). | 12) | Þinur (Abies spp.) til áframhaldandi ræktunar. |
3. gr. Við viðauka IV bætist nýr liður í plöntur til áframhaldandi ræktunar eða fjölgunar: | f) | Lyngrósir (Rhododendron spp.) að undanskilinni Rhododendron simsii, má eingöngu flytja inn ef plöntur koma frá vaxtarstað þar sem Phytophthora ramorum finnst ekki. |
4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og öðlast gildi 1. júní 2015. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. mars 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Baldur Arnar Sigmundsson. |