1. gr. Í stað 2. málsl. 4. mgr. 18. gr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Skráningarmerki af gerð B, C og D skulu hafa áletrun í tveim röðum, tvo bókstafi og bandstrik í þeirri efri og eftir atvikum, sbr. 4. gr., bókstaf og tölustafi eða tölustafi í þeirri neðri. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. reglugerðarinnar: a. Í stað orðanna „skráningarmerkis samkvæmt 18.-20. gr.“ í niðurlagi 1. málsl. 1. mgr. kemur: fastanúmer, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. b. Á undan „íslenskir“ í a-lið 2. mgr. kemur: stórir. c. Við 2. mgr. bætast við d- og e-liðir sem orðast svo: d. Á einkamerki af gerð B, C og D, má fjöldi stafa, þrátt fyrir ákvæði í 4. mgr. 18. gr., vera eins og fyrir verður komið með góðu móti. e. Áletrun skráningarmerkis má ekki vera svo lík áletrun annars skráningarmerkis, sem þegar er í notkun að valdið geti ruglingi. 3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. reglugerðarinnar: a. Í c-lið 1. mgr. fellur niður „og“ í enda setningar. b. Aftan við d. lið 1. mgr. bætist við: geta verið 0,75 mm þykkar segulmottur, án upplyftra flata. 4. gr. Reglugerðin er sett með heimild í 60., 64. og 64. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 20. júní 2008. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |